Maður fyrir borð
Maður fyrir borð
Íslendingar og aðrar þjóðir stunda fiskveiðar á litlum 1-2 manna smábátum og er smábátaútgerð mikilvægur þáttur í atvinnulífinu. Jafnframt er skemmtibátaútgerð vinsæl í flestum löndum sem land eiga a sjó.
Banaslys hafa orðið vegna þess að menn hafa fallið fyrir borð og ekki hefur verið hægt að koma boðum um það til björgunaraðila. Verkefnið "Maður fyrir borð" á að bæta þetta ástand.
Komið er fyrir búnaði á sjómanninum sem verður í sambandi við móðurstöð um borð í bátnum. Búnaðurinn skynjar þegar maðurinn fellur fyrir borð. Þá sendir hann upplýsingar í búnaðinn á manninum sem byrjar strax að reikna staðsetningu sem er send til bátsins. Móðurstöðin um borð sendir þær upplýsingar til vaktstöðvar sem getur sent björgunarsveit á vettvang.
Hafsvæðum nærri landi er víðast vel þjónað með 2G/3G/4G farsímakerfum en auk þess er einnig hægt að nýta VHF fjarskipti. Jafnframt er hið nýja Galileo kerfi með neyðarfjarskiptahluta sem hugsanlegt er að nýta.
Verkefnastjóri: Sæmundur E. Þorsteinsson
Aðsetur: Háskóli Íslands
Meðumsækjendur: Háskóli Íslands, Vegagerðin
Sjóður: Tækniþróunarsjóður
Tegund: Hagnýtt rannsóknarverkefni
Lengd verkefnis: 3 ár
Ár | Umsóknarnúmer | Hluti styrks |
---|---|---|
2016 | 1639450611 | 13.048.000 |
Heildarupphæð: 13.048.000 kr.
Þátttakendur
Sæmundur E Þorsteinsson | Sérfræðingur | 5254920 | saemi [hjá] hi.is | https://iris.rais.is/is/persons/032fcfd4-6a08-4111-86e3-214c40edc442 | Rafmagns- og tölvuverkfræðideild |