Rannsóknadagur verkfræðinnar fór fram í VR-II þann 2. júní síðastliðinn. Rannsóknadagurinn er mikilvægur vettvangur fyrir nemendur og starfsfólk til að kynna rannsóknir sínar og efla tengsl innan verkfræðisamfélagsins. Dagurinn var vel sóttur og þar var kynnt fjölbreytt og öflug rannsóknarstarfsemi verkfræðideilda Háskóla Íslands.
Rúnar Unnþórsson, prófessor, deildarforseti Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar og formaður Verkfræðistofnunar HÍ, flutti erindi um starfsemi stofnunarinnar. Þar kom fram að doktorsnemum í verkfræðideildum hafi fjölgað verulega á undanförnum árum og að rannsóknarvirkni sé mikil. Hann benti jafnframt á að mikill vöxtur í doktorsnámi og rannsóknastarfi skapaði ný tækifæri til frekari uppbyggingar rannsóknainnviða. Mikilvægt væri að halda áfram að þróa rannsóknaraðstöðu samhliða vaxandi starfsemi, en rannsóknir innan Verkfræðistofnunar HÍ væru að mestu fjármagnaðar með styrkjum úr samkeppnissjóðum þar sem stofnunin nyti ekki sérstakrar fjárveitingar á fjárhagsáætlun Háskóla Íslands.