Betri miðlun upplýsinga í aðdraganda skurðaðgerða
Betri miðlun upplýsinga í aðdraganda skurðaðgerða
Markmið verkefnisins er að hanna kerfi sem bætir upplýsingamiðlun milli sjúklings og sjúkrastofnunar í aðdraganda skurðaðgerðar.
Verkefnið byggir á nýjum aðferðum við röðun skurðaðgerða, nýlegum leiðbeiningum sem tryggja hraðari bata eftir skurðaðgerðir (e. enhanced recovery after surgery, ERAS), aðferðum vélanáms (e. machine learning) og nýrri tegund rafrænna innviða til að miðla upplýsingum milli sjúklinga og heilbrigðisstofnanna (e. eHealth infrastructre).
Verkefnið er unnið í samstarfi Heilsugreindar ehf., Háskóla Íslands og Landspítala og getur skilað miklum ávinningi fyrir Landspítala og lagt grunn að sölu afurða og hugverkaréttinda til erlendra hugbúnaðarfyrirtækja á heilbrigðissviði.
Verkefnastjóri: Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson
Aðsetur: Heilsugreind ehf.
Meðumsækjendur: Háskóli Íslands, Landspítali
Sjóður: Tækniþróunarsjóður
Tegund: Sproti
Lengd verkefnis: 2 ár
Ár | Umsóknarnúmer | Hluti styrks |
---|---|---|
2019 | 1992680611 | 9.990.000 |
Heildarupphæð: 9.990.000 kr.
Þátttakendur
Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson | Prófessor | 5254623 | rjs [hjá] hi.is | https://iris.rais.is/is/persons/a90215e4-617c-448e-9dd0-b0537f0f924c | Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, kennsla |