Kortlagning og vöktun á náttúru Íslands með fjarkönnun

Image
""

Kortlagning og vöktun á náttúru Íslands með fjarkönnun

Hnattrænar umhverfisbreytingar hafa bæði félagsleg og efnahagsleg áhrif í nútímasamfélögum.

Hraðar og sjálfvirkar kortlagningar- og vöktunaraðferðir með stórum kvarða eru nauðsynlegar til að minnka áhrif þessara breytinga og skilja stærðina og flækjustigið á stýriferlunum.

EMMIRS er frumlegt þverfræðilegt verkefni sem notast við bestu fjarkönnunargögn í rúmi og rófi í þeim tilgangi að þróa og beita fullkomnustu kortlagningar- og vöktunartækni.

Miðdepill verkefnisins eru tvö sérvalin svæði í óbyggðum Íslands, Hekla og Öræfajökull, sem mikilvæg dæmi um margs konar umhverfisbreytingar á Íslandi og í heiminum. Nákvæm jarðfræði- og gróðurkort verða gerð í verkefninu með háþróuðum flokkunaraðferðum sem beitt verður á fyrrgreind svæði. Þessi kort verða byggð á mikilvægum gögnum sem safnað verður í verkefninu ásamt öðrum fyrirliggjandi fjarkönnunarmyndum.

Söguleg vöktun byggist á þeim fjarkönnunarmyndum sem fyrir liggja og nýtist til greiningar á breytingum á svæðunum með gagnabræðslu. Þannig má meta umhverfisbreytingarnar sem orðið hafa sl. 70 ár fyrir Heklu og Öræfajökul. Ásamt svæðisgreiningu og háþróaðri líkanagerð má rannsaka tíðni ferlanna og stikana sem stýra þeim til að gefa einstakan og yfirgripsmikinn skilning á hreyfifræði landslags.

EMMIRS verkefnið sameinar unga vísindamenn og helstu sérfræðiþekkingu heimsins á mörgum þverfræðilegum sviðum til að auka þekkingu fyrir þróun og framkvæmd kortlagningar og vöktunartækni umhverfis til framtíðar.

Verkefnastjóri: Jón Atli Benediktsson

Aðsetur: Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Meðumsækjendur: Gro Birkefeldt Moller Pedersen, Þorsteinn Sæmundsson , Daniel Hölbling, Olga Kolbrún Vilmundardóttir , Nicola Falco , Kolbeinn Árnason, Pedram Ghamisi, Guðfinna Th Aðalgeirsdóttir, Simone Tarquini, Guðrún Gísladóttir, Borgþór Magnússon , Freysteinn Sigmundsson, Lorenzo Bruzzone, Melba M. Crawford

Lykilorð: Fjarkönnun , Háþróaðar aðferðir til kortlagningar og vöktunar, Athuganir á yfirborði jarðar, Ísland, Gagnasafn til viðmiðunar

Sjóður: Rannsóknasjóður

Tegund: Rannsóknasjóður - Öndvegisstyrkur

Fagráð: NÁTTÚRUVÍSINDI OG UMHVERFISVÍSINDI

 
 
Ár Umsóknarnúmer Hluti styrks
2015 152266051 38.886.000
2016 152266052 38.455.000
2017 152266053 36.936.000

Heildarupphæð: 114.277.000 kr.

Þátttakendur

Mynd af Jón Atli Benediktsson Jón Atli Benediktsson Rektor 5254302 benedikt [hjá] hi.is https://iris.rais.is/is/persons/c559b52c-e0f9-499f-b176-aa9cbe26018c Rektorsskrifstofa
No content has been found.
No content has been found.
Mynd af Guðfinna Th Aðalgeirsdóttir Guðfinna Th Aðalgeirsdóttir Prófessor 5254489 gua [hjá] hi.is https://iris.rais.is/is/persons/9a501031-485f-43ee-b399-f2a93caf7e4a Jarðvísindadeild
No content has been found.
Mynd af Freysteinn Sigmundsson Freysteinn Sigmundsson Vísindamaður 5254491 fs [hjá] hi.is https://iris.rais.is/is/persons/618626cd-0572-4787-8be1-53706a9946ea Jarðvísindastofnun