Ný flutningaker fyrir fersk matvæli

Image
""

Ný flutningaker fyrir fersk matvæli

Rannsókna- og þróunarverkefnið T-KER er samvinnuverkefni Sæplasts, Matís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri, ITUB og Icefresh í Þýskalandi.

Markmiðið er að þróa ný flutningaker, sem ætluð eru fyrir heilan fisk, fersk flök og flakabita til að byrja með en gætu hæglega reynst vel fyrir önnur fersk matvæli.

Hönnun nýju keranna, sem nefnd eru tvíburaker og staflast í pörum, miðar að því að bæta rúmmálsnýtingu í bakafragt um 60-75% og minnka þar með flutningskostnað í bakafragt um nærri 40%.

Kerunum, sem væntanlega verða um 10-15 cm grynnri en hefðbundin 460 L fiskiker, er einnig ætlað að varðveita fiskgæði og stöflunaröryggi jafn vel eða betur miðað við núverandi ker fyrir hvítfisk og einnota frauðkassa fyrir lax.

Jákvæð umhverfisáhrif nýju keranna stafa því bæði af bættri rúmmálsnýtingu í flutningi og aukinni notkun á endurnýtanlegum umbúðum í stað einnota umbúða.

Verkefnastjóri: Björn Margeirsson

Aðsetur: Sæplast Iceland ehf.

Meðumsækjendur: Matís ohf., Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, iTub ehf., Samherji hf.

Sjóður: Tækniþróunarsjóður

Tegund: Vöxtur

Lengd verkefnis: 2 ár

 

Ár Umsóknarnúmer Hluti styrks
2016 1646980611 18.000.000
2018 1646980612 17.351.000

Heildarupphæð: 35.351.000 kr.

 

 

Þátttakendur

Mynd af Björn Margeirsson Björn Margeirsson Aðjunkt 8984901 bjornm [hjá] hi.is Yes https://iris.rais.is/is/persons/d8b97bfd-0696-469f-954d-5afd2bb72206 Matvæla- og næringarfræðideild