Sjálfbær regnvatnsstjórnun í köldu loftslagi

Image
""

Sjálfbær regnvatnsstjórnun í köldu loftslagi

Neðanjarðar fráveitu kerfi, sem safna ofanvatni frá þökum, götum og görðum, anna ekki álagi í nútíma borgum. Endurtekin flóð, með tilheyrandi tjónum, hafa knúið bæjarfélög um víðan heim að endurhugsa frá grunni stýringu ofanvatns. Í æ ríkara mæli er horft til sjálfbærra lausna sem miðla vatni í náttúrulega farvegi.

Stærðarákvörðun ofanvatnskerfa hefur ekki tekið mið af langvarandi snjóbráð þrátt fyrir að vera jafn líkleg til þess að valda flóðum í þéttbýli og snarpir rigningarskúrar. Svörun við örum skiptum á þýðu og frosti, og tíðum rigningum á snjó, einkennandi fyrir vetrarloftslagið á Íslandi, hefur ekki verið prófuð. Skortur á þekkingu á afrennsli í borgum á veturna stendur í vegi fyrir farsælli innleiðingu sjálfbærra ofanvatnslausna.

Markmið þessarar rannsóknar er að greina vetrar afrennsli í misleitu borgarumhverfi með tíðum umhleypingum.

Örlög regns og snjós verður ákvarðað með því að greina söguleg gögn úr rekstri fráveitukerfisins í Reykjavík. Afrennsli og sig í jarðveg verður mælt í Urriðaholti, Garðabæ, sem er fyrsta hverfið á Íslandi hannað með tilliti til sjálfbærra ofanvatnslausna. Frammistaða svelgja til að miðla vatni á veturna verður metin.

Niðurstöður munu gegna lykilhlutverki í að tryggja farsæla hönnun og rekstur ofanvatnskerfa í þéttbýli í köldu loftslagi.

Verkefnastjóri: Hrund Ólöf Andradóttir

Aðsetur: Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Meðumsækjendur: Lars Bengtsson, Ólafur Arnalds, Johanna Sörensen, Ronny Berndtsson

Lykilorð: Afrennsli, Ísig, Svelgir, Frost-þýða, Snjór

Sjóður: Rannsóknasjóður

Tegund: Rannsóknasjóður - Verkefnisstyrkur

Fagráð: Verkfræði og tæknivísindi

 

Ár Umsóknarnúmer Hluti styrks
2018 185398051 14.900.000
2019 185398052 15.712.000

Heildarupphæð: 30.612.000 kr.

 

Þáttakendur

Mynd af Hrund Ólöf Andradóttir Hrund Ólöf Andradóttir Prófessor 5254656 hrund [hjá] hi.is