Tæringarhegðun efna í hermdu jarðhitaumhverfi djúpborunarhola

Image
""

Tæringarhegðun efna í hermdu jarðhitaumhverfi djúpborunarhola

Markmið verkefnisins er að rannsaka tæringarviðnám efna í super krítískri gufu sem líkir eftir aðstæðum í djúpu jarðhitaumhverfi. Þetta mun auka þekkingu okkar á tæringarhegðun efna í jarðhitaumhverfi djúpborunarhola sem eru við hærri hita, þrýsting og aukna tæringaráraun heldur en hefðbundnar háhitaborholur.

Niðurstöður verkefnisins munu gefa mikilvægar upplýsingar um hversu vel mismunandi efni standa sig í yfirmarksástands í jarðhitaumhverfi, sem hjálpar við hönnun og rekstur framtíðardjúpborunarhola.

Í verkefninu verður settur upp tilraunabúnaður til að framkvæma tæringar og útfellingarprófanir í hermdu jarðhitaumhverfi í yfirmarksástands gufu.

Tæringarviðnám mismunandi efna í þessu umhverfi verður greint með hefðbundnum tæringarmælingar aðferðum, m.a. þyngdartapsmælingum, og með því að greina með SEM og XEDS smásæja uppbyggingu og efnasamsetningu tæringar og útfellingar afurða sýnanna.

Niðurstöðurnar munu gefa upplýsingar um tæringarhraða og sprungunæmni efnanna í umhverfinu, og efnasamsetningu og uppbyggingu tæringa- og útfellingaefna.

Einnig verður rannsakað áhrif kísiloxíðs SiO2, sem er algengt útfellingarefni í jarðhitaumhverfi, á tæringarhraða efnanna sem prófuð verða.

Verkefnastjóri: Sigrún Nanna Karlsdóttir

Aðsetur: Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Meðumsækjendur: Andri Stefánsson, Kolbrún Ragna Ragnarsdóttir, Ingólfur Örn Þorbjörnsson

Lykilorð: Tæring og útfellingar, Jarðhiti, yfirkrítísk gufa, Efnisprófanir, djúpboranir

Sjóður: Rannsóknasjóður

Tegund: Rannsóknasjóður - Verkefnisstyrkur

Fagráð: Verkfræði og tæknivísindi

 

Ár Umsóknarnúmer Hluti styrks
2016 163108051 7.481.000
2017 163108052 8.638.000
2018 163108053 9.033.000
 

Heildarupphæð: 25.152.000 kr.

 

Þátttakendur

Mynd af Sigrún Nanna Karlsdóttir Sigrún Nanna Karlsdóttir Prófessor 5255310 snk [hjá] hi.is
Mynd af Andri Stefánsson Andri Stefánsson Prófessor 5254252 as [hjá] hi.is