Vélbúnaður til að setja öngla á fiskilínu og taka þá af

Image
""

Vélbúnaður til að setja öngla á fiskilínu og taka þá af

Önglar í stórum línuskipum eru geymdir á rekkum. Önglarnir eru festir við fiskilínuna með taumi. Algengt er að fest öngla við sigurnagla sem geta snúist utan um línuna og minnka hættu á að öngullinn og taumurinn vefjist utan um fiskilínuna.

Helsti ókostur þess að hafa önglana áfasta fiskilínunni er að viðhald á önglum verður takmarkað - einungis eru settir önglar í stað þeirra sem hafa slitnað af og þeirra sem eru mjög mikið skemmdir (ef tími gefst til). Hugmyndin að verkefninu er að taka önglana af fiskilínunni og geyma á rekkum þannig að taumur er áfastur önglunum en ekki fiskilínan.

Við það að hafa önglana aðskilda frá fiskilínunni er hægt að sinna viðhaldi á önglunum hvenær sem tími gefst til úti á sjó eða í landi og setja nýja öngla á þegar hentar.

Meginmarkmiðið er að ljúka við hönnun, smíði, forritun og prófanir á vélbúnaði sem samanstendur af tveimur einingum sem verða nefndar Ábótinn og Stripparinn. Ábótinn setur öngla á fiskilínu á meðan hún er lögð í sjó.

Verkefnastjóri: Rúnar Unnþórsson

Aðsetur: Vélsýn ehf

Meðumsækjendur: Vélsýn ehf, Þorvarður Gunnlaugsson, Háskóli Íslands

Sjóður: Tækniþróunarsjóður

Tegund: Frumherjastyrkur

Atvinnuflokkur: Fiskveiðar og fiskeldi

Lengd verkefnis: 2 ár

 

Ár Umsóknarnúmer Hluti styrks
2013 1317900611 4.692.000
2015 1317900612 5.991.000

Heildarupphæð: 10.683.000 kr.

 

Þátttakendur

Mynd af Rúnar Unnþórsson Rúnar Unnþórsson Prófessor 5254954 runson [hjá] hi.is