SMARTCHAIN
SMARTCHAIN
SMARTCHAIN verkefnið er samstarf um umbætur í virðiskeðjum sjávar og eldisafurða sem stuðla að sjálfbærari nýtingu auðlinda, m.a. með bættri framleiðslustýringu, bestun á flutningum, rekjanleikalausnum sem miða að gagnsæi og minni sóun, auk fullnýtingar á aukaafurðum í verðmætar afurðir.
Þekktir sjálfbærnivísar sem settir hafa verið fram alþjóðlega eru valdir af sérfæðingum og rýndir af hagaðilum við mat á gagnsemi þeirra við samanburð á frammistöðu og til að auðvelda ákvarðanatöku varðandi umbætur í átt að sjálfbærni í virðiskeðjum sjávar og eldisafurða. Hermilíkön sem auðvelda yfirsýn um frammistöðu verða þróuð og eru ætluð þeim sem taka stefnumótandi ákvarðanir, fyrirtækjum, fjárfestum, frumkvöðlum, stofnunum, hagaðilum og almennt samfélaginu við mat á hugsanlegum málamiðlunum.
Niðurstöður stuðla að þekkingu sem auðveldar innleiðingu á alþjóðlegum sjálfbærnivísum einkum fyrir bláa lífhagkerfið, en nýtist einnig virðiskeðjum matvæla almennt, sem gefur tækifæri að hagnýta niðurstöður í víðara samhengi.
SMARTCHAIN er ERA-NET BlueBio Cofund verkefni þar sem íslenski hlutinn er styrktur af TS og íslenskir þátttakendur eru HÍ, MarkMar og Brim. Verkefnistjórn er hjá SINTEF Ocean í Noregi.
Þátttakendur
No content has been found. |